Sérstakur saksóknari
Ólafur Þór Hauksson
Menntun
Cand. jur. frá Háskóla Íslands í júní 1989.
Starfsferill
Fulltrúi bæjarfógetans í Hafnarfirði, Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi og sýslumanninum í Kjósarsýslu (nú sýslumaðurinn í Hafnarfirði) 1989-1996. Forstöðumaður á skrifstofu sama embættis á Seltjarnarnesi 1989-1992. Sýslumaður á Hólmavík 1996-1998. Sýslumaður á Akranesi frá 1998. Settur ríkissaksóknari fjórum sinnum á árunum 2002-2005 til að annast meðferð tiltekinna endurupptökubeiðna fyrir Hæstarétti og settur saksóknari árið 2008 til að flytja endurupptökumálið fyrir Hæstarétti. Annaðist rannsókn á vegum ríkissaksóknara 2006-2007 á ætluðum hlerunum á síma utanríkisráðherra og starfsmanns utanríkisráðuneytisins á árunum 1992-1993 og 1995.
Önnur störf að stjórnsýslu
Hefur átt sæti í nefndum og starfshópum á vegum dómsmálaráðuneytis. Þar má nefna t.d. nefnd til að gera tillögur til dómsmálaráðuneytisins vegna þróunar og viðhalds á hugbúnaði hjá sýslumannsembættum við nauðungarsölur, nefnd til að setja staðlaðar reglur um meðferð handtekinna manna og fleira, samstarfshóp um stefnumótun varðandi upplýsingakerfi sýslumannsembætta, vinnuhóp um stefnumörkun vegna víðnets dómsmálaráðuneytisins, formennska í starfshóp sem falið var að semja frumvarp til laga um landeignarskrá, nefnd til að endurskoða ákvæði vopnalaga og reglugerða settra með stoð í þeim.
Ólafur Þór var kosinn í stjórn Sýslumannafélags Íslands árið 1997 og var formaður félagsins á árunum 2003-2006. Hann vann einnig að undirbúningi að stofnun Ákærendafélags Íslands og hefur setið í stjórn þess frá árinu 2007.
Upplýsingar um hlutabréfaeign, starfsleg tengsl o.fl. skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 142/2008
Ólafur Þór Hauksson á ekki hlutabréf að fjárhæð yfir fimm milljónir króna í fjármálafyrirtækjum né félögum, sem átt hafa hlut í þeim, og hefur ekki átt síðustu fimm ár. Viðskiptabanki hans er Glitnir þar sem Ólafur hefur tékkareikning með yfirdráttarheimild. Á fasteign hans hvíla lán frá Íbúðalánasjóði að upphæð í janúar 2009 um 6,6 miljónir kr. og lífeyrissjóðslán að upphæð í janúar 2009 um 3,6 miljónir króna. Starfstengsl Ólafs Þórs Haukssonar við fjármálafyrirtæki eru engin og ekki er fyrir að fara starfstengslum maka og náinna skyldmenna við stjórnun þeirra fyrirtækja svo að Ólafur viti til. Hann hefur aldrei setið í stjórnum fyrirtækja samhliða sýslumannsstarfi og ekki er fyrir að fara samsvarandi tengslum við þær stofnanir ríkisins sem rannsókn eftir atvikum kann að beinast að.
