Embætti sérstaks saksóknara óskar að ráða eftirfarandi starfsmenn
Embætti sérstaks saksóknara óskar eftir að ráða eftirfarandi starfsmenn:
- Löfræðinga með embættis- eða meistarapróf í lögfræði og nokkra starfsreynslu. Málflutningsréttindi eru æskileg.
- Lögreglumenn með marktæka reynslu af rannsóknum sakamála.
- Viðskiptafræðinga, verkfræðinga og/eða sambærilega menntaða sérfræðinga með marktæka reynslu af fjármálastarfsemi og/eða sérþekkingu á flóknum fjármálagerningum.
- Sérfræðinga með háskólamenntun á sviði upplýsingatækni með marktæka reynslu í sínu fagi.
- Aðra háskólamenntaða sérfræðinga með marktæka fagreynslu er nýtist í starfi hjá embættinu.
- Skrifstofumenn með marktæka reynslu af skrifstofustörfum, háskólamenntun er æskileg.
Hæfniskröfur vegna ofangreindra starfa eru að umsækjendur hafi auk ofangreindrar menntunar, góða íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti, en kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, heiðarleika, trúnað í starfi, skipulagshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum. Umsækjendur þurfa að geta starfað sjálfstætt sem og í hópi. Viðkomandi geta vænst þess að vera krafðir um upplýsingar sem um er getið í 3. gr. laga 135/2008 um embætti sérstaks saksóknara.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk. Vinsamlega sendið starfsferilskrár ásamt viðeigandi prófgögnum til stra@stra.is. Þeir sem þegar hafa lagt inn umsóknir um störf hjá embættinu, vinsamlega ítrekið umsóknir og sendið inn uppfærð gögn til stra@stra.is. Viðkomandi þyrftu að geta hafið störf eigi síðar en 1. september nk. Um launakjör fer eftir viðkomandi kjarasamningum.
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ MRI svarar fyrirspurnum, í síma 588-3031 og/eða í viðtali, en viðtalstími er frá kl.13-15. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hafa verið teknar.
