Fréttir
Sérstakur saksóknari Stofnun ársins 2012
Félagsmenn SFR, aðrir ríkisstarfsmenn og félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar voru spurðir um starfsskilyrði þeirra og líðan á vinnustað. Átta þættir voru mældir í könnuninni; trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægja og stolt. Í samsetningu heildareinkunnar er vægi þáttanna átta mismunandi. Trúverðugleiki stjórnenda vegur þyngst eða 28% en minnst er vægi sveigjanleika vinnu, ímyndar og sjálfstæðis í starfi eða 9%.
Hér má sjá nánari umfjöllun um könnunina og helstu niðurstöður.