Sérstakur saksóknari

Fréttir

Sérstakur saksóknari Stofnun ársins 2011 - 17.5.2011

 

Sérstakur saksóknari var valinn Stofnun ársins 2011 í hópi stærri stofnana í könnun á vegum SFR. Félagsmenn SFR og aðrir ríkisstarfsmenn voru spurðir um starfsskilyrði þeirra og líðan á vinnustað. Sérstakur saksóknari fékk einkunnina 4,40 af 5 mögulegum. Þetta er í sjötta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins og náði hún að þessu sinni til 19 þúsund ríkisstarfsmanna en niðurstöður byggjast á svörum tæplega 8.700 starfsmanna hjá 170 stofnunum. Meðaleinkunn þessara stofnana er 3,83.

 

Átta þættir voru mældir í könnuninni; trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægja og stolt. Í samsetningu heildareinkunnar er vægi þáttanna átta mismunandi. Trúverðugleiki stjórnenda vegur þyngst eða 28% en minnst er vægi sveigjanleika vinnu, ímyndar og sjálfstæðis í starfi eða 9%. Í flokki stærri stofnana voru 85 stofnanir með heildarmeðaleinkunnina 3,73. Sérstakur saksóknari fékk einkunnina 4,40. Af einstökum þáttum fékk Sérstakur saksóknari hæstu meðaleinkunn fyrir starfsanda, 4,69 og ánægju og stolt, 4,64. Lægstu meðaleinkunn fékk embættið fyrir launakjör eða 3,69. Svarhlutfall starfsmanna hjá embættinu var 50-59%.

 

 

Hér  má sjá nánari umfjöllun um könnunina og helstu niðurstöður.

 

 

Lesa meira
 

Embætti sérstaks saksóknara óskar að ráða eftirfarandi starfsmenn - 25.5.2010

 Embætti sérstaks saksóknara óskar eftir að ráða eftirfarandi starfsmenn:

Lesa meira
 

Yfirlýsing - 2.3.2010

Vegna umræðu um meintan leka rannsóknargagna frá embættis sérstaks saksóknara vill sérstakur saksóknari koma eftirgreindu á framfæri:

Lesa meira
 



Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica