Velkomin
Velkomin á vefsetur embættis sérstaks saksóknara
Embætti sérstaks saksóknara var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar atburða sem leiddu til svonefnds „bankahruns“ á Íslandi um mánaðamótin september/október árið 2008.
Embættinu er ætlað að rannsaka grun um refsiverða háttsemi hvort sem hún tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga. Eftir atvikum skal fylgja rannsókn eftir með saksókn.
Vefsetur embættis sérstaks saksóknara hefur tvíþætt hlutverk:
- að auðvelda almenningi að hafa samband við embættið og koma á framfæri ábendingum og gögnum.
- að koma á framfæri upplýsingum um embættið, þ.e. hlutverk þess og skipan, og fréttum af starfsemi embættisins.
Sjá nánari upplýsingar hér.

